2009148 - Ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022
Málsnúmer2009148
MálsaðiliFélag atvinnurekenda
Tengiliður
Sent tilSævar Freyr Þráinsson ;Steinar Adolfsson
SendandiGuðný J. Ólafsdóttir
CCSædís Alexía Sigurmundsdóttir
Sent01.06.2021
Viðhengi
pastedGraphic.pngimage001.png

 

 

Sendi þetta til kynningar og úrvinnslu.

 

Með góðri kveðju,

Guðný J. Ólafsdóttir

verkefnastjóri skjalamála

 

 

From: Ólafur Stephensen <olafur@atvinnurekendur.is>
Sent: þriðjudagur, 1. júní 2021 10:38
To:
radhus@reykjavik.is; kopavogur@kopavogur.is; postur@seltjarnarnes.is; gardabaer@gardabaer.is; hafnarfjordur@hafnarfjordur.is; mos@mos.is; oddviti@kjos.is; reykjanesbaer@reykjanesbaer.is; grindavik@grindavik.is; skrifstofa@vogar.is; afgreidsla@sudurnesjabaer.is; Akranes Email <akranes@akranes.is>; skorradalur@skorradalur.is; hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is; borgarbyggd@borgarbyggd.is; grundarfjordur@grundarfjordur.is; helgafellssveit341@gmail.com; stykkisholmur@stykkisholmur.is; eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is; snb@snb.is; dalir@dalir.is; bolungarvik@bolungarvik.is; postur@isafjordur.is; sveitarstjori@reykholar.is; talknafjordur@talknafjordur.is; vesturbyggd@vesturbyggd.is; sudavik@sudavik.is; arneshreppur@arneshreppur.is; drangsnes@drangsnes.is; strandabyggd@strandabyggd.is; skagafjordur@skagafjordur.is; skrifstofa@hunathing.is; valdimar@blonduos.is; skagastrond@skagastrond.is; skaga.byggd@simnet.is; hunavatnshreppur@hunavatnshreppur.is; akrahreppur@akrahreppur.is; akureyri@akureyri.is; nordurthing@nordurthing.is; fjallabyggd@fjallabyggd.is; dalvik@dalvik.is; esveit@esveit.is; horgarsveit@horgarsveit.is; postur@svalbardsstrond.is; sveitarstjori@grenivik.is; skutustadahreppur@skutustadahreppur.is; skrifstofa@tjorneshreppur.is; thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is; svalbardshreppur@svalbardshreppur.is; langanesbyggd@langanesbyggd.is; fjardabyggd@fjardabyggd.is; mulathing@mulathing.is; skrifstofa@vopnafjardarhreppur.is; fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is; postur@vestmannaeyjar.is; radhus@arborg.is; afgreidsla@hornafjordur.is; myrdalshreppur@vik.is; klaustur@klaustur.is; asahreppur@asahreppur.is; hvolsvollur@hvolsvollur.is; ry@ry.is; hruni@fludir.is; hve@hveragerdi.is; olfus@olfus.is; gogg@gogg.is; skeidgnup@skeidgnup.is; blaskogabyggd@blaskogabyggd.is; floahreppur@floahreppur.is
Cc:
eything@eything.is; fv@vestfirdir.is; bjarni@sudurland.is; ssa@ssa.is; ssh@ssh.is; ssnv@ssnv.is; sss@sss.is; ssv@ssv.is; samband@samband.is
Subject: Ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022

 

 

Til þess sem málið varðar. 

 

Eftirfarandi er ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda frá því fyrr í dag. Vinsamlegast komið henni á framfæri við sveitarstjórnina. 

 

?Stjórn Félags atvinnurekenda skorar á sveitarfélög að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2022.

Samkvæmt nýbirtu fasteignamati er hækkun mats atvinnuhúsnæðis 6,2% á landinu öllu; um 5,4% á höfuðborgarsvæðinu en um 8% á landsbyggðinni. Að óbreyttu þýðir þetta samsvarandi skattahækkun á fyrirtækin. FA bendir á að frá því að núverandi tekjumatsaðferð var tekin upp við útreikning fasteignamats atvinnuhúsnæðis fyrir árið 2015 og til ársins 2020 hefur álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði á landinu hækkað úr tæplega 17 milljörðum króna í um 28,5 milljarða. Skattbyrði fyrirtækjanna hefur á þessum skamma tíma þyngst um 11,5 milljarða eða tæplega 68%, þrátt fyrir lækkanir einstaka sveitarfélaga á skattprósentu.

Við svo búið verður ekki unað lengur. Áframhaldandi þynging á skattbyrði fyrirtækjanna vegna húsnæðis dregur mátt úr atvinnulífinu, seinkar efnahagsbatanum eftir heimsfaraldurinn og skerðir getu fyrirtækjanna til að standa undir launagreiðslum sem um var samið í lífskjarasamningunum og eru grundvöllur útsvarstekna sveitarfélaganna.

Stjórn FA telur að hér verði hvert og eitt sveitarfélag að sýna ábyrgð og gera breytingar á sinni álagningarprósentu þannig að hækkanir á fasteignasköttum skaði ekki atvinnulífið í landinu meira en orðið er. FA skorar jafnframt á sveitarfélögin að taka upp viðræður hið fyrsta við ríkisvaldið um breytingar á þessu fráleita kerfi þar sem skattgreiðslur af húsnæði eru beintengdar við þróun fasteignamats og taka þannig sjálfkrafa hækkunum, án nokkurs tillits til gengis atvinnulífsins að öðru leyti.?

 

Kveðja, 

 

Ólafur Stephensen
Framkvæmdastjóri/Secretary General
 
Félag atvinnurekenda
The Icelandic Federation of Trade
 
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
103 Reykjavík,
 
Sími | Phone: +354 588 8910
Farsími | Mobile: +354 669 1218
olafur@atvinnurekendur.is
www.atvinnurekendur.is